Jæja er ekki kominn tími til að skrifa eitthvað. Mikið að segja
frá..... eiginlega of mikið að ég veit ekki alveg hvar á að byrja
né hverju skal segja frá.
Byrjum bara á gærdeginum og síðustu vikum.
Já menningarnótt í gær og flugeldasýninginn hjá
hjálparsveitinni. Við erum búin að vera vinna í að tengja hana
síðustu tvær vikur og er búin að fara mikill tími í það. Fyrri
vikuna var vinnan að klárast hjá mér þannig að seinni vikuna var
maður í sumarfríi sem fór í alls konar reddingar fyrir
sýninguna á daginn og síðan tengivinnuna á kvöldin. Fyrir utan
þriðjudaginn var þar sem maður stóð í ströngu við að stýra gæslu á
Laugardalsvellinum á leik Íslands og Spánar. Sá ekki eitt einasta
sekúndubrot af leiknum enda skiptir ekki máli en vissi ekki
heldur útkomuna. Vissi meira hvað var að gerast alls staðar
annarsstaðar á vellinum en ekkert á vellinum sjálfum. Svona er að
vera stjórnandi. En já síðan vorum við að klára alla tengivinnu
fyrir menningarnótt á föstudagskvöldinu og síðan
á laugardagsmorgun vorum við á ferðinni um allan bæ að gera
klárt fyrir kvöldið. Vegna maraþonsins þurfti maður að mæta fyrir
kl 07:00 á laugardagsmorgun til að fara með vörubílinn niður á
bryggju áður en allir bílarnir færu í gæsluna við
maraþonið. Kl:10:00 var svo farið að vinna í að gera klárt með
því að Einar, Jói og Edda voru í að gera gámana klára á
pramman meðan ég fór með Árna, Siggu og Gumma niður
í varðskipið Ægir til að smíða fossinn utan á skipið.
Þegar það var lokið og allt tengt var það bara að bíða til hálf níu
þegar við fórum út í skip. Tveimur tímum seinna fór þessi
tveggja vikna vinna upp á 11. mín. Þetta var ein
best heppnaða sýning á menningarnótt í langan tíma og ekki
hægt að segja annað en að allir hafi notið hennar. Eftir
sýningunna var maður í tvo tíma um borð í Ægir að ganga frá og
síðan meðan þeir voru að létta akkerum og leggja af stað í land.
Tekur rosalegan tíma en magnað að standa í brúnni og fylgjast með
því hvað allt er skipulagt þarna hjá gæsluni. Um klukkan eitt
um nóttina var maður svo kominn upp á M6 og þá er eins og það
hafi orðið spennufall hjá manni. Ætlaði niður í bæ að hitta Davíð
og kappana en leið út af áður en það varð. Ekki það sem maður
ætlaði að gera 
En já skólinn að byrja 4.sept.... óvenju seint að mínu mati.
Langar bara að fara byrja á þessu. 
Annars er það að skella sér í fjallgöngu á næstu dögum meðan enn
er heiðskýrt og skella sér á Vífilfell þar sem það er rosalega
flott að horfa yfir borgina í sólarlaginu.
Já vinnan var skemmtileg í sumar og eins og áður var
maður með fyrirmyndarhóp hjá sér sem vann til verðlauna og þau
voru ekkert annað en leiksýninginn Footloose fyrir allan
hópinn. Mögnuð sýning sem allir höfðu gaman af. Á
tímabili langaði manni bara að hendast upp á svið og taka þátt
í stemmingunni
Síðan um Verslunarmannarhelgina var það Þjóðhátíð í eyjum. Einar
hringdi í mig helgina áður og vanntaði sárlega fólk í að tengja
sýningunna þar þannig að ég hringdi út lið og endaði með að fara
með Eddu og Árna með mér til eyja. Ef það er eitthvað skipti sem ég
hef bölvað því að hafa gleymt myndavél er það þessi ferð. Við fórum
fimm úr Reykjavík, sem sagt ég, Edda og Árni frá HSSR ásamt
Gísla og Eiríki (kærasta hennar Eddu) úr HSG. Við keyrðum austur á
Bakka á fimmtudeginum þar sem við flugum svo til eyja. Við
gistum í skátaheimilinu og var það skrítið að vera þar einn enda
síðustu ár hefur gæslan líka verið þar en þar sem
Vestmanneyjasveitinn var ekki með gæsluna í ár var húsið autt. Á
daginn vorum við að tengja og svo fór liðið inn í dal á kvöldin og
næturnar. Á föstudeginum þegar allt var búið að tengja var okkur
boðið í siglingu á björgunarskipinu Þór í kringum eyjarnar þar
sem ég bölvaði því að vera ekki með myndavélina en þarna eru margir
flottir staðir og var þetta skemmtileg sigling. Um kvöldið skaust
ég inn í dal fyrir brennuna til að skjóta signal bombu á loft sem
átti að merkja að brennan væri að fara að byrja. Gaman að fá að
prufa vestmanneyja patrolinn enda lúxusútgáfan. Á laugardeginum var
svo aðal málið Þá mætti Jenni (vestmanneyjingur) seint enda var
hann tekinn af lögguni um nóttina fyrir að vera "ofurölva og með
óspektir" inni í dal um nóttina. Hvað meina þeir..... þá ætti bara
að loka nær alla inni sem eru í dalnum
Halldór mætti seint
niður á bryggju og skust í land með Stuðmenn en eftir þá sjóferð
verður hann eftirleiðis þekktur sem "skelþunni skipstjórinn með
bleika hárið"
Allavegna kölluðu Stuðmenn hann það seinna um
kvöldið þegar þeir voru að spila í fjölskyldu og húsdýragarðinum.
Um kvöldið var svo farið með allt upp á klett og tengt, 2 gámar 30
tertur 15 eldbombur og ógrinni af ground mine. Hins vegar
þegar koma að sýningunni klikkaði full mikið. Terturnar
skammhleyptu og fóru ekki af stað sem og einnig ground mine. Einar
ákvað að reyna starta tertunum en hefði frekar látið það ógert.
Þegar hann var að reyna starta þeim frá tengiboxinu sprungu
eldbomburnar rétt við hann og mátti hann taka til fótanna en slapp
samt ekki alveg ómeiddur enda smá brunninn á hendi. Það stoppaði
hann ekki í að fara inn í dal um nóttina. Á sunnudeginum var það
svo liðið frá Reykjvavík sem tengdi sýningunna að undanskylinni
Eddu þar sem hún fékk svo heiftarlega í bakið að hún lá í rúmminu
það sem eftir var af helginni. Leiðinlegt að lenda í því þarna.
Sunnudags sýninginn tókst frábærlega, enda nær alfarið í höndum
liðsins frá Reykjavík
það eina sem klikkaði þar er að stóra
eldbomban sem við vorum að gera tilraun með sprengdi undirstöðuna
undan sér og tókst hólkurinn á loft við það. Sem betur fer flaug
hann stutt og lennti rétt hjá. Enn annar frábær sýning. Stemmingin
var samt góð alla helgina og skemmtu sér allir vel. Á mánudeginum
fórum við svo upp á flugvöll, þreytt og hlökkuðum til að komast
heim. En nei... rétt fyrir flug fóru allir símar á ferð, í stuttu
máli "F2 gulur leit við Skaftafell að manni". Þar sem við
vorum en í eyjum var maður ekki að plana að fara fyrr en Ninna
hringdi í mig og bað mig um að leiða hópinn sem væri að fara, enda
var þá Árni búin að lofa mig í útkallið án þess að ég vissi. Þá var
bara farið í að galla sig þarna á vellinum og reyna flýta fluginu
sem varð síðan ekki þörf. Þegar í land var komið Brunuðum við Árni
á Hvolsvöll þar sem jeppinn pikkaði okkur upp og síðan var haldið
austur. Komum þangað seint um nóttina og hófum að leita áður en við
vorum send í tveggja tíma hvíld meðan mesta myrkrið var. Síðan
hófst leit aftur og vorum við rétt ný búin með leitarsvæðið okkar
þegar kallinn fannst heill á húfi, gott að það var í lagi með hann.
Þá var haldið í bæinn og var sofið alla leiðina. Þegar í bæinn var
komið var farið í að ganga frá og koma sér heim í hvíld og
svo vinnuna daginn eftir.
Sem sagt nokkuð búið að vera gerast og margt meira sem ekki er
hér.
En nóg í bili.
Kv. Ragnar